| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | 31 | |||

Flutningar 2007!!!
Vá hvað þetta sumar hefur liðið svakalega hratt!!
Maður hálfskammast sín fyrir það hvað það er langt frá síðustu færslu!! Aglavegana (svona eins og Mikael Máni ber það fram!)..........Við erum flutt norður yfir heiðar og kot og búin að koma okkur þokkalega fyrir í Kotárgerðinni!! Það er þó enn nóg af óuppteknum kössum ég segi það nú ekki......og síðan á eftir að setja myndir á veggi og kaupa nokkrar mublur og ljós en það kemur smám saman. Það er ekkert gaman að gera allt of mikið í einu.
Við fluttum sem sagt 1.ágúst.
Mikael Máni var búinn að vera í tæpar 3 vikur hér á Akureyri hjá ömmu og afa á meðan mamma og pabbi kláruðu að vinna og pakka öllu dótinu í Reykjavík. Hann naut sín út í ystu æsar á þessum tíma þar sem hann fékk að dunda sér í bústaðnum með ömmu og afa og var einn um alla athygli frá þeim!
Mikael Máni er strax búinn að eignast einn mjög góðan vin hér í götunni og leika þeir sér saman alla daga og eru ýmist að hjóla til hans eða okkar fram og tilbaka um götuna. Það er líka afar stutt í æðislegar klappir sem þeir klöngrast á í ævintýraleit og fara þangað í hinar ýmsu orustur með sverð og boga og örvar. Hver getur beðið um að hafa það betra en þetta fyrir barnið sitt??????
Hann er búinn að fá tvær góðar heimsóknir (fyrir utan margar aðrar að sjálfsögðu!!) frá Reykjavík. Fyrst kom mjög góður vinur hans til hans í heimsókn ásamt fjölskyldu sinni, hann Andrés Nói, og var það bara yndislegt. Við reyndar vorum bara nýkomin inn í húsið (kvöldinu áður) þannig að það var lítið vitað um leirtau og slíkt en þetta var svona tjaldfílingur fyrir okkur öll! Fjölskyldan var á ferðalagi hér á Norðurlandi og vantaði gistingu og gólfplássið hér var nægilegt þannig að þau slógu til og “tjölduðu” í stofunni.
Síðan helgina á eftir komu Sigrún, David, Kristján og Jóel og gistu hjá okkur í tvær nætur sem var alveg æðislega gaman. Við fórum á Fiskidaginn mikla á Dalvík og skemmtum okkur þar öll saman og hittum Svenna stóra og Jóel afa sem var alveg frábært!!
Jóel yngri spreytti sig svo við það að mála risastóran dreka á vegginn í herberginu hans MM og sjá má afraksturinn á myndasíðunni hans Svenna (http://www.flickr.com/photos/sushanta/1103299393/). Við hlökkum bara alveg rosalega til að fá fleiri gesti!!
Mikael Máni fór síðan í sveitina til Sigga og Audreyjar í Fagranesi og fékk að gista þar og taka þátt í mjöltum og hinum ýmsu sveitastörfum. Hann bara elskar að fá að fara þangað!! Kom vel ilmandi heim og var síðan sendur í bað morguninn eftir og skrúbbaður rækilega. Hann skreið upp í til okkar og mamman knúsaði hann og kreisti en pabbanum leist illa á þefinn af drengnum þannig að aldrei þessu vant spratt sá gamli á fætur eiturhress og tók að sér að skrúbba drenginn upp úr sápu og shæna hann til!!!
Það er svo margt skemmtilegt búið að gerast að það er erfitt að telja það allt upp en tvennt mikilvægt er eftir.
Í fyrsta lagi eru fyrstu barnatennurnar loksins dottnar úr í neðri gómi. Tannálfurinn var nú búinn að bíða ansi lengi eftir að þær færu þar sem fullorðinstennurnar voru komnar upp fyrir aftan þær!!!
Í öðru lagi og ekki síður mikilvægt er að Mikael Máni er byrjaður í skóla!!! Hann er svolítið varkár í öllu þessu ferli og tekur námið og allar reglur afar bókstaflega eins og honum er lagið. Hann hefur aðeins haldið sér til hlés í öllum frímínútum og ekki alveg viljað blanda sér í leikinn með hinum krökkunum en vonandi fer það allt að koma.
Helga Sólveig er nú búin að vera alveg yndisleg eins og stóri bróðir hennar. Hún byrjaði flutningana á því að næla sér í hita og kvef og reyndist vera með eyrnabólgu. Hún fékk hinsvegar að glíma við þá sýkingu upp á eigin spýtur og án aðstoðar sýklalyfja og gekk þetta allt yfir á nokkrum dögum.
Evamarie “amma” hennar kom hingað norður aðra helgina í ágúst og heimsótti okkur og það var ekkert smá gaman að hitta hana aftur. Hún kom færandi hendi með rósarunna og skrautkál til að gróðursetja í nýja garðinum. Helga Sólveig var afar glöð að hitta hana aftur og sagði “HALLÓÓ´” eins og henni einni er lagið! Hún var hinsvegar komin í þvílíkt þreytukast þegar ég reyndi að ná myndum af þeim saman þannig að það tókst ekki!!! Glatað!!!
Helga byrjaði síðan núna í ágúst hjá dagmömmu sem heitir Bylgja og býr í næstu götu. Það hefur gengið alveg ofboðslega vel og engin vandamál þar ( 7 9 13!!!)
Í síðustu viku fékk hún svo alveg eiturskemmtilega gubbupesti sem fylgdi 40 stiga hiti og skemmtilegheit. Henni brá svo svakalega við öll sprengiuppköstin að næsta klukkutímann á eftir neitaði hún að setja tunguna upp í sig og slefaði bara og reyndi að skafa af tungunni óbragðið. Litla kellingin!!
Það var vissulega mikill söknuður að flytja frá vinum og ættingjum í Reykjavík en á sama tíma gríðarlegur spenningur og tilhlökkun yfir nýju aðstæðunum í lífi okkar. Húsið og garðurinn er alveg æðisleg að okkar mati og pláss fyrir alla og allt það dót sem okkur fylgir. Besta er svo líka að litlu krílin geta verið nær ömmu og afa sem yljar manni um hjartarætur!
Núna fer mamman að verða duglegri aftur að setja inn fréttir og myndir. Búið er að setja inn slatta af nýjum myndum í júní og júlíalbúmin. Það hefur hinsvegar lítið verið tekið af myndum í ágúst þar sem myndavélin gleymdist svo oft á ferðalögum og þegar gesti hefur borið að garði. Reyni nú að bæta úr því nú þegar allt hefur komist í eðlilegra horf!!!
Kveðjum að sinni
Brekkusniglarnir


